Er búin að komast að ýmsu í dag.
- Það er hægt að senda fólk í sprautun á Íslandi, þurfi það að skipta um kynþátt.
- Það er engin einföld leið til að taka strætó úr Síðumúla í Vatnagarða.
- Það er ekki jafn einfalt og það virðist í fyrstu að búa til marokkóskan fána.
- Ef rafmagnsljósið byrjar að loga stanslaust í bílnum manns, borgar sig að fara með hann strax til læknis. Ekki bíða þangað til hann deyr allt í einu, einhvers staðar útí bæ. Það er vesen.
- Það borgar sig ekki að skilja veskið sitt eftir einhvers staðar langt í burtu, þegar bíllinn manns er dáinn einhvers staðar úti í bæ. Ávísun á ýmis ófyrirséð vandræði.
- Vínber geta verið fyndin.
Þetta eru alltsaman miklar staðreyndir.
Yfirskilvitlegt innsæi mitt segir mér að margar þessara uppgötvana tengist aðstoðarleikstjórn Aðfaranætur...
SvaraEyðaBestu kveðjur frá Köben til leikhópsins.
Manni getur auk þess orðið ansi bumbult á vínberjum...
SvaraEyðaSvo ekki sé minnst á hóstaköst og raddmissi.
SvaraEyða