27.4.05

Url

Það er bara urlað að gera í vinnunni og allsstaðar. Og ef maður fær svakalegar hugmyndir um að taka að sér að skipuleggja hluti þá ætti maður allavega að hafa vit á að muna það ekki daginn eftir. Er sem sagt að skipuleggja hluti með Hugleiki. Sökum eigin heimsku í ölæði.

Er að fara að bjóða litlu systinunum mínum í mat annað kvöld. Ljómi og sómi, um að gera að sýna þeim íbúðina mína áður en ég sel og flyt.

Fór í leikhús í gær. Það stóð alveg undir væntinum og gott betur. Gefur Jóðlífinu sem flutt var á bandalagsþingi á Höfn 2000 ekkert eftir.

Best að fara að skrifa Hullurum bréf og blása til einþáttunga.

8 ummæli:

  1. Svona á að skrifa leiklistargagnrýni! Morgunljóst þeim fyrir innvígða og hinir vaða í villu.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus1:09 e.h.

    uuuuu... HVAÐA leikrit var þetta nákvæmlega sem þú fórst að sjá???
    Bara svona fyrir okkur hin sem vöðum í villu og svíma, EN vitum þó ALLT um Jóðlífið á Hofn.

    SvaraEyða
  3. Bið ó-innvígða að sýna biðlund. Er enn að velta því fyrir mér hvort ég get/þori/nenni að setja fram nánari umfjöllun um málið.

    SvaraEyða
  4. Hættu að velta!

    Gettu!

    Þorðu!

    Nenntu!

    Settu!

    SvaraEyða
  5. Wow! Herra Boðháttur bara mættur á svæðið!

    SvaraEyða
  6. Svo er það við hin sem vitum hvaða leikrit þú fórst að sjá en langar núna að vita meira um Jóðlífið á Höfn...

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus10:03 f.h.

    Ó NEI þig langar ekki til að vita meira um Jóðlífið á Höfn!
    Kv Huld.

    SvaraEyða