12.9.05

Það er komin mynd

af Rannsóknarskipinu í veskið mitt.
Held það hafi aldrei áður verið mynd af neinum í veskinu mínu.

Hef sennilega bara ekkert verið með hjartað í buddunni.

6 ummæli:

  1. Bónus og hjartað, beint í budduna... ;-) Annars hef ég ekki verið með mynd í veskinu síðan veski fullu af myndum var stolið frá mér fyrir... hugshugs... 14 árum. Mæli a.m.k. með að eiga öryggisafrit :-)

    SvaraEyða
  2. Ja, ég á auðvitað myndefnið heima...

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus10:49 f.h.

    Hmmm... Ég er enn ekki farin að ganga með mynd af Halla í veskinu. HVað segir það manni um sambandið? Annað en það hversu gott minni ég hef. Ég man oftast hvernig hann lítur út nú og ef ekki þá læt ég koma mér á óvart. Það verður jú að vera einhver spenna í þessu

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus1:47 f.h.

    Mér finnst „Öryggisafritið“ gott nafn á Árna. Næstum því jafn gott og „Rannsóknarskipið“.

    SvaraEyða
  5. Er ekki Öryggisafritið frekar afkomandinn?

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus10:46 f.h.

    Jú líklega er það hárrétt. Nema þetta sé Öryggis-afritið, Öryggis-smáritið og fjölskyldumyndin Öryggis-ritsafnið.

    SvaraEyða