23.10.05

Thats it!

Nú er eitthvað alvarlegt á seyði. Er að fara að þvo rúmföt. Ekki svosem í frásögur færandi, nema ég er allt í einu gripin óstjórnlegri löngun til að strauja þau. Sem og öll önnur rúmföt sem til eru á heimilinu. Bara vegna þess að þau yrðu flottari í skápnum. Er viss um að húsfrúin Ringsted hefur ekki einu sinni upplifað annað eins. Held ég sé endanlega að breytast í mömmu mína.

Eins gott að það er leikæfing í allan dag, annars veit ég ekki hvar þetta hefði endað...

8 ummæli:

  1. Úff, þetta er hættulegt, stórhættulegt.

    SvaraEyða
  2. Ef ég héldi heimili eins og ég vildi, væru brækurnar bæði straujaðar og stífaðar.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus11:06 f.h.

    Húsfrú Ringsted straujar ekki rúmföt. Punktur.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus12:37 e.h.

    Hrafnhildur straujar bara þegar það koma jól. Punktur. Man hvað mamma varð sár þegar hún fann straujárnið fína sem hún gaf mér í kassanum ... rúmu ári eftir að hún gaf mér það.
    Svo er skandall að við sitjum uppi með að vera líkar mömmum okkar - og ekki síst því í okkar ágætu mæðrum sem fer mest í taugarnar á okkur.

    SvaraEyða
  5. Ég strauja alltaf rúmföt, og raða þeim síðan í litaröð í skápinn,og ég er ekki einu sinni ólétt. Þetta mun bara versna.

    SvaraEyða
  6. heyr heyr húsfrú ringsted! nærföt og rúmföt eru ekki straujuð. þvílík fásinna.

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus1:52 f.h.

    Mmmm ... litaröð!? Fallegt!

    ss

    SvaraEyða
  8. OMG. Ég er að breytast í Hugrúnu!

    SvaraEyða