Já, honum Godoti leiðist ekki Jóðlífið. Fer að sækja um fyrir hann sem ævifélaga í Allt of langt gengið.
Nú er hann orðinn vatsberi. Talsvert loftkenndari og óútreiknanlegri persónuleiki þannig að nú fyrst er ómögulegt að segja upp á hverju hann tekur... Kannski líklegri til að verða kvenkyns sem því nemur?
Og hann missti af stórskemmtilegum fótboltaleik í dag. Rannsóknarskip fór með mig í langan bíltúr með holum og hraðahindrunum í dag til að reyna að láta hann ná leiknum á morgun. Ekki lítur það nú út fyrir að ætla að hrífa neitt.
Annars hefði þessi helgi nú verið hin ákjósanlegasta. Smábátur í láni hjá ýmsum ættingjum og við bara hérna tvö að dingla okkur, bæði komin í þýðifrí og hefðum ekkert betra að gera en að skreppa aðeins uppá fæðingardeild. En Kafbátur GO er greinilega þegar farinn að þróa með sér hegðunarveilur.
Jæja þetta er orðið eins og sagan endalausal... Kannski verður búin til sápuópera um konuna sem var alltaf ólétt.
SvaraEyðaHvort hljómar betur Goddi eða Dotti -bara svona sem möguleg gælunöfn.
SvaraEyðaVar ég búin að segja þér að á sínum tíma var ég ólétt í rúmlega 10 1/2 mánuð - samkvæmt útreikningum vísindanna. En ég vissi alltaf betur...svona innst inni.
Hih. Það er hughreystandi. Ég er hins vegar búin að vera ólétt í nákvæmilega 41 viku og 2 daga, og ber bæði mér og vísindunum saman um það.
SvaraEyðaOg ég er eiginlega að fyllast vísindalegum áhuga á því hversu lengi ég myndi ganga með, ef ég yrði ekki gangsett í vikunni... Ekki samt nógu miklum áhuga til að láta á reyna...