26.1.06

...já, og Hugleikarar!

Mér skilst að það sé tiltektardagur á Eyjarslóðinni á laugardag. Við hjónin verðum sennilega nokkuð vant við látin, en til þess að leggja mitt að mörkum til mætingar hef ég ákveðið að yfirmaður Tiltektardax, hún Júlía Hannam, verður ein þeirra allra fyrstu til að fá fréttir í sms-i. Og það verður örugglega löngu áður en þær birtast hér. Þannig að ef menn vilja vera með þeim fyrstu með fréttirnar þurfa þeir að vinna fyrir þeim með skítverkum.

Og, Árni var að frétta að morgundagurinn væri alls ekki sem verstur til fæðinga. Það ku vera afmælisdagurinn hans Mozarts. Hvernig hljómar Amadeus Árnason? Kallaður Ammi?

24 ummæli:

  1. Já, átti einmitt eftir að fá staðfestar ákveðnar fréttir sem ég var að heyra af ædentitíi söngvara þeirrar ljómandi hljómsveitar...

    Með því áhugaverðara sem ég hef heyrt á þessu ári.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus6:37 e.h.

    Hey? Er hægt að bæta mér á SMS listann?? Ég bý nefnilega svo afskekkt!!

    8958507

    SvaraEyða
  3. Nokkrir tengiliðir verða látnir láta boð út ganga. Geri ráð fyrir að þú verðir annað hvort á Hugleixlistar eða Nönnulista. Kannski báðum!

    SvaraEyða
  4. ég er mað ylfu á lista svo hún fær þá bara tvöfalt..

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus7:39 e.h.

    Elsku vinkona, ég hugsa til ykkar og óska ykkur góðs gengis.

    SvaraEyða
  6. Ég þekki líka ágætispilt sem er 9 ára í dag, afskaplega ljúfan vatnsbera. Ef kafbátur verður þannig, þá verða a.m.k. næstu 9 árin ósköp þægileg :-) Gangi þér vel, við erum öll að hugsa til þín.

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus10:41 f.h.

    mleqtlbs, maður hvað ég er spennt!!!

    SvaraEyða
  8. Við krossum fingur, tær, augu...

    Gangi þér vel!

    SvaraEyða
  9. Nafnlaus1:46 e.h.

    Gangi ther vel elsku Sigga min. Eg hugsa stanslaust til thin og Gotta kafbats. Thetta er svo yndislegt (adallega samt thegar thetta er buid), heimsins mesti lettir :).

    Thin Svandis

    SvaraEyða
  10. Nafnlaus6:23 e.h.

    Ef blessað barnið kemur á morgun, þá skeikar þetta um einn dag hjá mér;-)! Gangi þér vel ljúfan og njóttu þess að skoða sætar tær og fullkomna putta og krúttlegt nef og......... njóttu bara.Þetta er ekkert svo vont, amk ertu fljót að gleyma því þegar anginn kemur í fangið. Má ég líka vera á smslista? Knús Halla

    SvaraEyða
  11. Nafnlaus8:06 e.h.

    Úff kannski er þetta bara allt að gerast akkúrat núna.... mikið skelfing vona ég að þetta gangi nú vel hjá þér og bróderíið verði með minnsta móti! Obbosslega stórar hamingjuóskir fyrirfram, frétti vonandi af þessu hjá einhverjum, kveðja Lilja

    SvaraEyða
  12. Nafnlaus10:22 e.h.

    Sigga Lára
    Ég sendi ykkur mínar bestu kveðjur með ósk um að þetta gangi allt saman ósköp vel og litli "Kafbátur" komist án mikilla erfiðleika upp á yfirborðið. Kannski verður hann kominn þegar þetta er skrifað.
    Guð veri með ykkur.

    Kveðja
    Mammennarsvandísar

    SvaraEyða
  13. Nafnlaus12:12 f.h.

    Fann fyrir tilviljun að þið hefðuð eignast dóttur! Óska ykkur alveg skrilljón sinnum innilega til hamingju og bíð spennt eftir framhaldi á sögunni! Vonum innilega að allt hafi gengið vel og mæðgunum heilsist vel!

    SvaraEyða
  14. Til hamingju með dótturina! Ég hef fylgst spennt með framvindu mála hinum megin á hnettinum og óska ykkur alls hins besta.

    SvaraEyða
  15. Nafnlaus12:32 f.h.

    Til hamingju elskurnar.

    SvaraEyða
  16. Til lukku með vatnsberuna!
    Vonandi heilsast öllum vel!

    SvaraEyða
  17. Nafnlaus1:38 f.h.

    Héðan úr danaveldi berast einróma straumar í þá átt að frumburður yðar hljóti nafnið Róberta Fjóla - augljóslega í höfuðið á hinum endursnúna syni púllara. Kveðjur; Tóró, Huld og Siggi (Við tökum það fram að við reyndum að snúa hetjunni James McFadden til íslenskra kvenkenninga, en urðum að játa okkur sigruð). Velkomin Róberta!!!

    SvaraEyða
  18. Nafnlaus5:20 f.h.

    Það eina sem ég hef heyrt eða séð sem staðfestir afstaðna fæðingu eru hamingjuóskirnar hér fyrir ofan. Og væntanlega er "nmhutmn" lýsing bloggers á hljóðunum í hinni nýbökuðu móður meðan á því stóð. Óska ykkur innilega til hamingju!

    SvaraEyða
  19. Nafnlaus12:49 e.h.

    Sigga Lára og fjölskylda!

    Innilegar hamingjuóskir með litlu stúlkuna. Gangi ykkur allt að óskum.

    Kveðja
    Anna, svandísarmamma

    SvaraEyða
  20. Nafnlaus1:20 e.h.

    sjpbiw! Mun hafa heyrst þegar hún skaust í heiminn sú stutta! Það er ég viss um að fegurra barn hefur ekki fæðst á þessari jörð!!!
    Elskurnar, til hamingju og gæfan fylgi ykkur!!

    SvaraEyða
  21. Nafnlaus2:05 e.h.

    glæsilegt !!

    til hamingju..

    hvenær fær maður sjá ?

    SvaraEyða
  22. Nafnlaus3:37 e.h.

    Sigga Lára og fjölskylda. Innilega til hamingju með litlu prinsessuna. Kveðja úr Bretaveld, Guja

    SvaraEyða
  23. Nafnlaus7:58 e.h.

    Frétti af þessu í Eyjafjarðarsveit í gærkvöldi á Þorrablóti...fljótt flýgur Fiskisagan. Lítil vatnsberastúlka hljómar vel í mín vatnsbera eyru.

    Innilega til hamingju með stúlkuna og gangi ykkur allt í haginn, leiklystargyðjum landins hefur fjölgað

    SvaraEyða