1.6.07

Iss

Ljóta pakkið, foreldrar hans Péturs í Barbapabbabókunum. Fyrst er hann "of stór" til að búa í garðinum. En þegar hann er orðinn frægur, ja þá kemur nú aldeilis annað hljóð í strokkinn. Þá verður þeim sko ekki skotaskuld úr því að byggja honum heilt hús úti í garði, og minna má nú gagn gera.

Höfðingjasleikjur!

(Hvaðan ætli annars þessi "skotaskuld" sé komin? Hver er vel að sér í Mál til komið?)

4 ummæli:

  1. Þetta fer einmitt ótrúlega mikið í taugarnar á mér en þar sem þessi bók er í algjöru uppáhaldi hjá Heiðu neyðist ég til að leiða það hjá mér.

    SvaraEyða
  2. Þetta er bara svona í henni veröld, Barbapabbi er einmitt rétti vettvangurinn til þess að benda börnunum sínum á þetta og nota barbapabba í forvarnartilgangi.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus5:34 e.h.

    Skotaskuld er skuld sem erfitt er að innheimta. Það sem ekki er skotaskuld er þar með sannkölluð kökusneið.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus12:52 e.h.

    Kvittun...
    Ætli Skotaskuld sé ekki komin af því að Skotar eru taldir nokkuð fastheldnir á fé... sjáið bara Jóakim aðalönd... það er mjög erfitt að rukka hann... :)

    SvaraEyða