Annars er helst í fréttum að litlu ormarnir voru dugleg við að halda vökum í nótt. Freigátan að veikjast og Hraðbáturinn enn með magapínu af pensillíni, sem ég þori ekki að láta hann hætta á fyrr en allt er búið, fyrst Freigátan er að fá nýtt kvef. Þessvegna er ég hér að geðvonskast ein með barnafjöldina á meðan Rannsóknarskip er á leiklistarnámskeiði. En næturvökur þeirra litlu eru þó að skila því að þau eru grjótsofandi núna. Smábátur er kominn úr aukatíma í tónfræði og er að undirbúa að fara í afmæli á eftir. Í millitíðinni ætlar einn vinur hans að koma til hans og hefur fengið ströng fyrirmæli um að hringja í allllls ekki dyrabjöllunni þegar hann kemur.
Móðurskipið eipar endanlega ef ró litlu sofandanna raskast fyrr en bráðnauðsynlegt er.
Er farin að láta mig dreyma um og sjá í hillingum allt sem ég ætla að gera þegar Rannsóknarskip kemur aftur. Ætla allavega að fara í lannnnngt bað.
Og reyna að afgeðvonska mig.
Já blessuðu börnin manns eru ekki alltaf auðveld.... Ég hugsa oft um það hvað ég hef það ólýsanlega gott að geta nokkurn veginn sofið óáreitt allar nætur - svona fyrir utan það þegar litlir fætur koma trítlandi yfir í mömmu rúm um miðja nótt!
SvaraEyðaVona að þú náir að afgeðvonskast fyrir jól!