Menn hljóta að vera farnir að pæla í þessu. Eftir Skýrslu skrifar handritið sig sjálft. Yfirheyrslusenurnar, plottin, næturfundirnir. Sennilega eru Sigurjón Sighvats og Friðrik Þór/Balti búnir að tala saman. Plottið er alveg týpískt hasar. Svo er það flóttinn undan réttvísinni. Einkaþotueltingaleikur. Keyrt hratt um margar borgir á flottum bílum. Búið að máta svala leikara í útrásarvíkingana. Hilmir gæti mögulega meikað Jón Ásgeir. Var það ekki Steini Bakk sem var þessi ofursvali Bjöggi í Skaupinu? Alltsaman töff gaukar. Flottar andhetjur á flótta.
En. Hver er svo eftirlýstur af Interpool?
Alveg ... kjag-kjag-kjag og líta út eins og moldvarpa ... „Hæ. Ég heiti Siggi...“
Og Pétur Jóhann er kominn í aðalhlutverkið. Myndin hefur aðeins færst til um genre. Er ekki lengur hasarmynd heldur svona ... Fargo. Eða Big Lebowski. Undarlegt fólk í skrítnum aðstæðum.
Í fjarska heyri ég símann hans Ragnars Bragasonar hringja... Eða jafnvel David Lynch?
Cohenbræður, er það ekki?
SvaraEyðaOg nú bætist
breski stjörnulögfræðingurinn við
Sennilega leikinn af Ólafi Darra. Eða þá John Goodman.
Er ekki kominn tími á feminiskan Westra. Brynhildur leikur lögregluforingann, Ólafur Darri aðstoðarmanni sem gætir rimlanna og ég skal leika útlagann þá ég sé ekki orðinn 114 kíló.
SvaraEyðaKveðja, Jón Gunnar