Síðasta ár hófst eins það næsta mun gera, hér í Kópavogi. Aldrei slíku vant vorum við reyndar með Smábátur heima á áramótum, en hann flaug til Flórída með móðurfólkinu sínu annan janúar og dvaldi í sólinni um tveggja vikna skeið. Og þar með hófst ferðabrjálaðasta ár í sögu fjölskyldunnar.
So...there.
Þegar ég frétti það var ég á leiðinni til Frakklands með Hagaskólagenginu og Rannsóknarskip var búinn að skreppa til Rúmeníu í millitíðinni.
Og Smábátur útskrifaður úr Hagaskóla.
Freigátan útskrifaðist af leikskólanum Grænatúni.
Síðan fór ég bara austur og aftur í tímann, flutti inn í gamla herbergið mitt og fór að kenna í gamla menntaskólanum mínum. Vinna almennilega vinnu eins og allt eðlilegt fólk. (Tímabundið, út 2014.)
Já, og í lok sumars kom nýja þýðingin mín að Önnu í Grænuhlíð út. Það var nú gaman. Bók 2., Anna í Avonlea, er farin í yfirlestra og er væntanleg á vordögum.
Svo var ég í Kópavoginum í hálfan mánuð í september þar sem Rannsóknarskip þurfti að fara aðeins til Tyrklands. Eins og menn gera.
Svo er ég búin að jójóast á milli í haust, og þau einu sinni austur. Mikið verður nú gott þegar þau koma alfarið til mín í vor eða sumar.
Svo er ég örugglega að gleyma einhverju sem gerðist á árinu. Örugglega mörgu.
Og þá er að bresta á með 2013. Útlit er fyrir að atvinnuástand húsfreyjunnar verði nokkuð stöðugt, nema hún klúðri einhverju geðveikt illa en flutningar annarra í fjölskyldunni standa fyrir dyrum í vor eða sumar. Planið er að gefa Egilsstöðum séns í allavega ár eða svo.
(Hin halda að þau nái mér síðan kannski í burtu aftur. Hahahahihihoooo!)
Gleðilegt ár!
Takk fyrir það gamla!
Hvar er læk takkinn?
SvaraEyðaSækja um fljótlegt og þægilegt lán til að borga reikninga og til að hefja nýjan fjármögnun verkefnum þínum á ódýrustu vexti 2%. Hafðu samband við okkur í dag með: elijahloanfirm@outlook.com með lánsfjárhæð sem þarf vegna þess að lágmarkslánið okkar er 1,000.00 að einhverju vali lánsfjárhæð.
SvaraEyða