Hugleikur verður með Þetta Mánaðarlega í Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld og hitt kvöldið. Húsið opnar í báðum tilfellum klukkan 21.30 og sýningar hefjast klukkan 22.00.
Og svo fer að styttast í frumsýningu á Jólaævintýri Hugleix. Það frumsýnist í Tjarnarbíó um næstu helgi, nánar tiltekið laugardaginn 19. nóvember klukkan 20.00. Dagbók verkefnisins má lesa hér og miðapantanir á báða viðburði má fremja hér:

Ég verð bara að sjá Jólaævintýrið! Verð! Er það barnvænt? Eða bara fyrir fullorðna?
SvaraEyðaÞað er barnvænt. :-)
SvaraEyðaGeggjað! Þá get ég tekið Sumarrósina með!
SvaraEyða