Gleðilegt nýtt ár! Mikið sprengja nú Reykvíkingar á áramótum. Jájá.
Kengúran heppnaðist með afbrigðum ljómandi vel og ekki var gæsalifrin á undan af verri endanum. Hefur langað í svoleiðis síðan ég kom frá Frakklandi, fyrir... að verða þremur árum síðan! Sjitt hvað tíminn líður.
Reif mig upp fyrir allar aldir í morgun til að flytja föt milli herbergja. Gat bara ekki vitað af skápaplássinu í "nýja" herberginu ónotuðu. (Já, ég er að verða mamma mín.) Fötin okkar og Smábáts voru líka voða glöð og teygðu alveg úr sér.
Fórum í fjölskylduboð til ömmu og afa Smábáts í dag. Þar voru börn af ýmsum árgerðum þannig að það var soldið eins og að rekast á draug framtíðarjóla. Þarna gátum við allavega séð sýnishorn af ástandinu á næstu þremur jólum. Það var nú... athyglivert. Maður sér í hendi sér að ýmsu verði sullað niður og að þögnin um þessi jól og áramót er sennilega eins sinnar tegundar, næstu 10 ár eða svo.
Gleðilegt ár!! Takk fyrir gamla mín elskulega!
SvaraEyðaGleðilegt nýtt ár. Sem ætlar að hefjast á endaspretti.
SvaraEyðaGleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamla og síðbúnar jólakveðjur :)
SvaraEyða