19.2.06

Mont

Var búin að gleyma að það er konudagur. Í tilefni daxins þreif Rannsóknarskip allt húsið og fór með mig í gönguferð og keypti handa mér tertu. (Ætli honum finnist megrunin mín ganga fullhratt fyrir sig?) Í tilefni þess að ég á svo góðan mann, eins og segir í laginu, ætla ég að setja inn pabbalegar myndir:


Feðginin í Hreiðrinu, morguninn eftir fæðingu.


Sætir feðgar á aðventunni.

2 ummæli:

  1. Nafnlaus1:38 f.h.

    Dísus, maðurinn minn óskaði mér nú ekki einusinni til HAMINGJU!! Hvað þá meira. Hann hlýtur að þjást af psyhyg eða einhverju...

    SvaraEyða
  2. Æji, hvað hann Árni er alltaf jafn sætur :-) ... rosalega krúttarlegur og góður pabbi þarna á ferð alveg greinilega... og ekki skemmir fyrir að hann mundi eftir deginum í gær!

    SvaraEyða