Fór út á meðal mannkyns í gærkvöldi, á mánaðarlegt hjá Hugleik í Þjóðleikhúskjallaranum. Mjög ánægð með vinnsluna á þætti okkar ömmganna, sem og annað sem á daxkránni var. Náði reyndar ekki að hlusta til enda á prógramm Rip Rap og Garfunkel þar sem móðurhjartað var komið í buxurnar, en vona að tækifærin til þess séu mörrrg framundan. Þessu er ég bara að segja frá til að svekkja fólk, en prógrammið verður ekki endurflutt.
Og eftirfarandi símtalsupphaf átti ég heim í hléi:
Rannsóknarskip: Halló.
Móðurskip: Hæ, hvernig gengur?
Rannsóknarskip: Illa!
Móðurskip: Nú? Á ég að koma heim? Er hún brjáluð?
Rannsóknarskip: Charlton er yfir, 2-0.
Móðurskip: Hmmm. En barnið?
Rannsóknarskip: Henni er alveg sama. Hún er sofandi...
Þannig að ég gat með góðri samvisku verið lengur. Og Liverpool tapaði, 2-0, held ég.
Þetta þykir oss góð saga!
SvaraEyðaTil lukku með þáttinn ykkar.
Ha hahahaha!! Rannsóknarskip er greinilega hæglátur húmoristi eins og bóndi minn!! Það er góður kostur!
SvaraEyðaHVurnig er annars með Hrafnkötlu hina sigldu? Hefur hún fengið eitthvað nafn?
Nafn verður ekki gert opinbert fyrr en hún verður skírð. Sem minnir mig á, þarf að hafa samband við einn prest...
SvaraEyðaÞað eru svona samtöl sem maður öfundast yfir að hafa ekki skrifað sjálfur.
SvaraEyða