Ekkert blogg á B-daginn? Bleik er brugðið.
Annars er ég búin að furða mig á hverjum morgni um tíma. Og líka á hverju eftirmiðdegi/kvöldi. Ég verð alltaf jafnhissa þegar aftur fer að birta á vorin. Það er alltaf eins og ég búist aldrei við því að það gerist aftur. En nú er farið að verða eiginlega alveg bjart þegar ég fer í vinnuna. Og ófært í austurátt á bíl.
Tíminn líður og nú fer að líða að nokkrum frumsýningum.
Þær verða plöggaðar alveg miklu betur síðar.
Freigátan er sæt lítil gáta. Mér finnst að þú eigir að koma með hana í heimsókn svo að Baldur geti reynt við hana. Skilst að þetta séu tómar stelpur þarna syðra.....
SvaraEyða