Við Freigátan þrifum svalirnar í dag. Ég spúlaði, hún sullaði. Það er komið vor í vesturbænum. Hún fékk að sigla um svalirnar og verða blaut og drullug upp fyrir haus. Það þótti ekkert smá stuð.
Og nú er hún farin að sofa, feðgar út í bæ að horfa á fótbolta, og ég þarf að prófarka eina mynd. Sem er eins gott þar sem þriðjudagar algjörlega sökka í sjónvarpinu.
Og að lokum getraun:
Mig langar í búðir í ýmsum dulargervum og vildi að það væri offissjéraklúbbur á Íslandi svo hægt væri að hafa þar hárkollukvöld. Og ég ætla í spennandi drykkjuleik næst þegar eru vetrarólympíuleikar.
Fyrstu seríu af hvaða sjónvarpsþáttum var ég að kaupa og er að horfa á?
(Hugsanlega veit þetta enginn nema Bára.)
uuu ... ég man þetta nú ekki alveg. En mig rámar eitthvað í að hafa verið undrandi á að þú hafir ekki séð eitthvað af þessum þáttum áður. Rétt?
SvaraEyðaBara svona til að vera með í getrauninni þó svo ég hafi ekki hugmynd um hvað þú ert að tala þá giska ég á Ab Fab.
SvaraEyða