12.5.07

Kusum

Fjölskyldan mínus Smábátur fór í dag og kaus. Í ráðhúsinu. Það er kalt úti en samt eru allir þar. Mæli engan veginn með því að reyna að vera á bíl í bænum í dag. Eða einu sinni með barnavagn. Ég er þunn, Rannsóknarskip er þreyttur eftir að hafa vaknað með Freigátunni eldsnemma í morgun. Þau eru að leggja sig.

Ég er að huxa um að setja allra fyrstu þættina af Friends í DVD-arann og gera slíkt hið sama.

Best að byrja bara aftur á þessum degi.

En gaman var í pottinum hjá henni Hrefnu í Bingópartíinu í gær.
Takk fyrir skemmtunina, allir þar.

4 ummæli:

  1. Ég hef smá áhyggjur af drykkju yðar

    SvaraEyða
  2. Skylda hvers Verðlaunaskálds er vissulega að vera drykkfellt úr hófi fram! Skál!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus5:33 e.h.

    Verður þá ekki risapartý eftir sýninguna í Þjóðleikhúsinu?

    SvaraEyða
  4. Ég er allavega strax búin að panta frí í vinnunni daginn eftir...

    SvaraEyða