27.1.09

Gera ráðherrar ekki neitt?

Að vera þingmaður er fullt starf. Ekki satt? Eða það skyldi maður ætla af þingmannalaununum.

Er þá ekki eitthvað bogið við það að ofan á þingmennskuna geti menn líka verið ráðherra?
Sem er starf sem gefur hálfgerð ofurlaun?
Tala nú ekki um þegar menn ætla sér að vera tvö- eða þrefaldir ráðherrar?
Er sólarhringur Össurar Skarphéðinssonar eitthvað lengri en annarra?
Er ekki atvinnuleysi í þjóðfélaginu?
Erum við í alvöru að tala um að einn maður eigi að sinna fjórum þrælvellaunuðum störfum?
Er skortur á hæfu fólki til að sinna ráðherrastörfum innan Samfylkingarinna?
Eða þjóðfélagsins?

Eða gera þessir ráðherrar kannski bara svona pínulítið?
Af hverju fá þeir þá öll þessi laun?

?
???
Fyrst á annað borð er farið að spyrja spurninga er engin leið að hætta.

3 ummæli:

  1. "Er sólarhringur Össurar Skarphéðinssonar eitthvað lengri en annarra?"

    Tjah, hefurðu ekki lesið bloggið hans?

    SvaraEyða
  2. Nei. Aldrei meikað niður í hálfa færslu. En ég ímynda mér að hann sitji á þingfundum eins og ég í skólanum. Þykist vera að taka voða mikla punkta og sé svo bara að blogga eins og vindurinn. ;-)

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus8:35 e.h.

    Ég verð að taka upp hanskann ... verður þetta ekki eiginleg starfsstjórn þar sem engar pólitískar línur verða lagðar? Bara slökktir eldar?

    Svo hefur verið talað um að steypa atvinnuvegunum saman í eitt ráðuneyti þannig að vonandi markar þetta upphaf að raunverulegum breytingum í því efni.

    Ég hef þörf fyrir að trúa á hið góða í einhverju þessi dægrin.

    SvaraEyða