Ég hélt að bloggið myndi græða feitt á öllu hanginu hér yfir skræðunum og huxinu í doktrinu. En öðru er nær. Verkefnin svoleiðis hlaðast upp og láta ekki bíða eftir sér og vinnudagarnir eru svo fljótir að líða að það er hreint engin hemja. Í allan dag er ég til dæmis búin að sitja yfir yfirlesnum drögum að doktorsverkefni, aðallega heimildaskránni. Hvernig í rassgatinu stendur á því að maður getur verið á fjórðu háskólagráðu (farinn að stefna hraðbyri í að fá vinnu á bensínstöð) og er ekki enn búinn að temja sér einhverja samræmda heimildaskráagerð? Ég held ég geri þetta aldrei eins. Og þarf alltaf að fletta uppá hvernig þetta má og á að vera.
Djull.
Allavega, var heima í gær með augnsýktan Hraðbát. Einstaklega þægilegt að vera bara með eitt barn. Enda tókum við til höndum, tókum til og þrifum ógurlega og þvoðum örugglega fjórar þvottavélar. Í dag er síðan stuttur hlaupadagur. Það þýðir að ég hleyp svona kannski 3 - 4 km. Á morgun er langur hlaupadagur og þá hleyp ég eitthvað hátt í 10. Þriðja hvern dag hleyp ég síðan ekki neitt en hjóla þá eða syndi eða geri eitthvað annað í staðinn. Þannig er hið rúllandi á þremur dögum prógramm. Þyngd og lögun stendur samt enn í stað eftir langlegu ágústmánaðar. Planið er samt að minnka um fimm kíló í viðbót og fjölmarga sentímetra fyrir jól. Hörbalæf og önnur fæðubótarefni eru étin í akkorði, en fátt eitt annað. Svo Átak Ofurheilsunnar er enn í gangi.
Svo held ég að gítarnámið hefjist í næstu viku. Enn er á huldu hvernig stundaskráin í því lítur út. En ég er fjarskalega spennt. Svo á að sækja um styrk fyrir spánnýtt leikrit sem enn er ekki nema frekar óljós hugmynd. Af því að það eru nú allsstaðar péningar.
Djull? Er þetta pent bölv? Þá þykja mér nautin rekin ...
SvaraEyðaErtu ekki til í að láta mig fá þessi 5 kg.? Það er einmitt það sem mig vantar.
SvaraEyðaElllskan, ég þarf nú helst að losna við fimmtán í viðbót, svona í allt. Ertu ekki til í að taka þau bara öllsömul?
SvaraEyðaJújú, þú meilar þetta bara á sigurvinbs@gmail.com ;)
SvaraEyða