21.1.05

Eftirfarandi þykir kannski einhverjum ekkert til að gera grín að. En mér finnst það. Þannig að viðkvæmar sálir eru beðnar að hætta að lesa hér.

Líkami minn er Musteri.
Ekki nóg með það, hann er Musteri geðsjúks safnaðar úr annarri vídd.

Þegar meðlimum leiðist, þá ákveða þeir að gera musterinu einhvern fíflaskap. Fyrir einum 9 árum síðan var gúrkutíð hjá söfnuðinum. Þá ákvað hann: Hei! Látum eins og Musterið sé með MS!
8 árum síðar sungu safnaðarmeðlimir einum rómi: Nei, bara djók! og höfðu þá bætt skaðann að fullu.

Úti í Frakklandi leiddist þeim líka. Hvort það var vegna holls fæðis, nægrar heyfingar eða bara almennrar velmegunar skal ósagt látið. Þá datt söfnuðinum í hug að fara í ferðalag upp í innra eyra og gera skandal með þeim afleiðingum að Musterið valt um koll, trekk í trekk. Musterið sá við kvikindunum einu og hálfu ári seinna og komst að því hvernig bæta mætti skaðann.

Var þá kyrrt um hríð.

Nú seint á síðasta ári var söfnuðurinn geðsjúki úr vídd hrekkjapúka greinilega aðframkominn af leiðindum eina ferðina enn. Settist hann að í móðurlífi voru og bjó til þungunareinkenni. Áður en lesandinn sleppir sér í þeirri samglaðninghysteríu sem jafnan fylgir barneignum annarra, skal lesa lengra. Söfnuðurinn væri nú ekki sá húmoristi sem hann er, ef hann ætlaði að fara að búa til alvöru barneign. Hann bjó nefnilega til fúlegg. Þungun með öllu... nema vísi að barni. Ef ekki hefðu komið til nútímalæknavísindi og þartilgerð gegnumlýsingartól hefði Musterið sennilega gengið með fulla meðgöngu og eignast síðan... vatn.
Og söfnuðurinn sungið einum rómi: Nei, bara djók.

Er Musterið orðið nokkuð pirrað á þessu pakki sem í því býr og heldur helst að fremja þurfi andasæringar. Spurningin er bara hvað muni duga best? Hreinlífi og hallelújasöngur? Jóga og nýjaldarkukl? Eða skal illt með illu út reka?

Sjúkrasaga Musterisins er allavega að verða full af lygasögum.

4 ummæli:

Ásta sagði...

Hvernig fór aftur fyrir stráknum sem hrópaður "úlfur, úlfur!" í tíma og ótíma. Var hann ekki étinn af úlfi? Þá er vonandi að eins fari fyrir pakkinu sem skvattar í Musterinu.

Spunkhildur sagði...

Og ef það er ekki tilefni til almenns mannsolls, þá hvað. Um að gera að ögra þessum andskotum...

Nafnlaus sagði...

Heyrðu!
Þetta er náttúrulega ekkert annað er helber móðursýki. Taktu þig bara saman í andlitinu kona og sinntu skyldum þínum og......

Þetta var skilgreining liðinnar aldar.
Á nýjöld mæli ég einmitt með kukli og yoga, hreinsandi hráfæði og höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun........
Verði þér að góðu!
Ylfa

Gadfly sagði...

með illu skal illt út reka -sú speki hefur allavega dugað mér betur en læknamafían.