8.6.05

Kræst!

Í þarsíðustu færslu olli ég greinilega misskilningi. Svo rétt er að ég árétti áður en fleiri missa legvatnið, þetta sem ég er farin að undirbúa varðandi jólin er leikfélagstengt.

Við erum ekki að tala um brúðkaup eða barneignir. Ef ég væri að opinbera svoleiðis, þá væri ég að opinbera það, ekki vera með einhver hint og hálfvitagang. Svoleiðis fjalla ég eingöngu um leikhús.

2 ummæli:

Berglind Rós sagði...

Híhí, þetta er aldurinn, fyrsta sem fólki dettur í hug eru brúðkaup og barneignir ;-)

Ásta sagði...

Svo er einhver barna- og brúðkaupsbylgja í gangi þannig það er ekki nema von.