23.9.09

Varúð! Kommúnismi!

Hvernig væri:

- Að skera ekki niður í heilbrigðis- né menntakerfi heldur efla hvurutveggja, þar sem það er löngu tímabært, og sporna í leiðinni gegn atvinnuleysi.
- Að segja Aþjóðagjaldeyrissjóðnum að fara heim til sín og bíta í það súra epli að það verði bara fokkíng fjárlagahalli á meðan við erum að borga upp rugl síðustu ára.
- Ef menn vilja endilega fá einhverja peninga inn í ríkissjóð: Að þjóðnýta orkulindir og auðlindir, allar sem eina, (þar með talið helv... mælana sem Finnur Ingólfs er búinn að græða alveg nóg á) halda bönkunum í eigu ríkisins og fara í harðar aðgerðir til að ná aftur peningunum sem þessir 30 sem allir vita hverjir eru stálu.

Já, og eigendur eignarhaldsfélaga eru AÐ SJÁLFSÖGÐU persónulega ábyrgir fyrir skuldum þeirra. Og hana fokkíng nú.

Það myndi ég gera.
Hverjir eru með í að stofna kommúnistaflokk?

4 ummæli:

Unknown sagði...

Ég er til. Heimsyfirráð eða dauði! Eða bara Íslandsyfirráð. Nægir allavega til að byrja með... :o)

Sigga Lára sagði...

Ég held að við ættum að reyna að læra af mistökum allra fyrri -isma og láta heimsyfirráðin kannski eiga sig. ;)

Þórunn Gréta sagði...

Ég! x K

Siggadis sagði...

*Rétt upp hönd*