24.2.05

Fleira mágfólk. Hér er Sverrir. Hann þýðir rauðu seríuna. Ég er ekki að ljúga.
Þá vantar bara einn sem heitir Þórður og þá er systkinaflotinn kominn allur. (Nema Rannsóknarskipið sem má ekki vera að því að blogga þar sem hann er stöðugt upptekinn við smíðar rómantískra sms-a mér til kætningar.)

Ætla að búa til sér bloggaraflokk með flotanum, það skal þó tekið fram að þau blogga ekki sérstaklega oft. Enda ættareinkenni að huxa sig veeeel um áður en menn tjá sig.

3 ummæli:

Nonni sagði...

Nákvæmlega!

Sverrir Friðriksson sagði...

Svo það sé alveg á hreinu þýði ég ekki alla Rauðu seríuna, bara bók og bók inni á milli.

Sigga Lára sagði...

Hitt hljómar bara... ókei, kannski ekki betur, en fyndnar.