24.2.05

Hatar Guð homma?

Ég hef vaxandi áhyggjur af trúarofstæki Bandaríkjamanna. Sá í sjónvarpinu mínu um daginn fullt af fólki þar í landi sem gjarnan mótmælir við jarðarfarir samkynhneigðra og tilkynnir aðstandendum það á fullu blasti að hinn látni sé farinn til Helvítis. Og þykist bara í fullum rétti, enda er ennþá bannað að vera hommi í slatta af fylkum hinna sameinuðu furstadæma norður ammríku. Og þetta þykist vera að FRELSA heiminn? What?

Enda, ef ég man rétt mínar biblíuskoðanir á unglingsárum þá var nú tekið sterkara til orða um margt annað en samkynhneigð. Til dæmis á að taka óhlýðin börn af lífi og menn mega ýmislegt við óþægar eiginkonur.

Og svo stundar þessi þjóð dauðasyndirnar eins og hún fái borgað fyrir það. Til dæmis gluttonar hún sem engin önnur, sem á henni sér. Ég sá til dæmis í þessum ágætis þætti 200 kílóa konu syngja "God Hates Fags" hástöfum. Það er í eitt af fáum skiptum sem ég hef hent prjónunum mínum af öllu afli í sjónvarpið og íhugað mannrán og líkamsmeiðingar.

En ég hef áhyggjur af þessu, ég verð bara að segja það. Og þegar restin af heiminum fær nóg og fer loxins í allsherjarstríð við Bandaríkjamenn (sem er að verða tímaspursmál að óbreyttu), þá verðum vér "sódómistar" á Íslandi mjög röngu megin við víglínuna.

Herinn burt!

2 ummæli:

Ásta sagði...

Í dag er ég ofboðslega sammála þér. Hef hef nefnilega eytt morgninum í að skoða þetta og er í hálfvitaútrýmingarhug.

Nafnlaus sagði...

Ég hef komist að því að andammrískir pistlar yðar fylla æðar mínar tilgangi lífsins. Og það er ekkert smáræði.