16.5.06

Veikindi

Þá er Freigáta komin með fyrsta kvefið sitt. Liggur bara með hita og hor og veit ekkert hvernig hún á að vera. Auðvitað ferlegt að fá kvef þegar maður kann hvorki að hósta né snýta sér. Hún er ósköp öjmingjaleg og ég vorkenni henni hræðilega, en nú bregður svo við að ég er með meiri verkefni en Rannsóknarskip þannig að hann er í umsinninu á meðan ég þykist vera að reyna að vinna.

Er sjálf með horafgang síðan um helgi, og er af þessum ástæðum júróvísíón alveg óráðstafað. En ég vona að hún verði nú fljót að ná þessu úr sér, stelpan. Verst að hún fordekrast örugglega af öllu umsinninu.

1 ummæli:

Hugrún sagði...

Svo væri fínt að fá myndir af prinsessunni þegar hún er laus við horið