12.6.06

Internet!

Fannst ekki þetta líka skínandi, ilmandi, internet, bara hérna á sjálfum Húsabakka! Og í leiðinni uppgötvaðist að í gær var víst sunnudagurinn ellefti, en ekki tíundi, eins og misskildist í mínu undarlega hugarástandi. En nú er ég auðvitað komin á Svarfdælskan tíma og veit ekki neitt hvaða dagur er eða hvað klukkan er.

Veit hins vegar að ég er búin að þurfa að vesenast voða mikið og sofa slatta og er þessvegna ekkert farin að skrifa. Við Freigáta iðkum ungbarnasund í sundskála Svarfdæla daglega, og finnst stuð.

Og núna eiga allir að mæta á söngæfingu hjá Tótu að læra að syngja Svarfaðardal, þannig að það er víst ekki til setu boðið. (Svo skilst mér að sé blak og gufa, en við Freigáta tökum nú líklegast ekki þátt í því.)

1 ummæli:

Þórunn Gréta sagði...

Í dag er ég fátæk, í dag vil ég grenja... mig langar að vera með! Knús til allra í dalnum. Uqropi.