26.11.06

Gat gubbað

Og það ekkert smá. Við hjónin notuðum helgina í aldeilis hreint magnaða gubbupest. Og Freigátan er enn í maganum og notaði daginn til að kúka í öll fötin sín.

Aldeilis eins gott að það var til lykteyðandi sprey á heimilinu... Já, var.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú lýgur því. Freigátan er ekki „ENN Í MAGANUM“! Ég hef séða hana. Hún er kannski „með“ í honum en það er bara allt annað mál.

(Annars góður titill á ævisögu tvíbura með skerta sjálfsmynd: „Með í maganum“)

fangor sagði...

druelmyl! sagði blogger. hann hefur sennilega rétt fyrir sér