23.5.08

Karir

Er að skríða eitthvað saman, eftir að hafa sofið í um sólarhring. Hraðbáturinn er líka að byrja að jafna sig. En Rannsóknarskip er á niðurleið. Og fyrst ég þurfti að sofa í sólarhring, þá þarf hann líklega að sofa í viku og fá pensillín, við sömu veiki. Ojoj.

En litla kirtlalausa daman virðist alveg fílhraust.

Og svo komumst við bara áfram í Júróvísjón! Við urðum nú eiginlega bara hissa. Og ekki bara við, allar Norðurlandaþjóðirnar! Líka þær sem voru með ÖÖÖÖmurleg lög!
Nú held ég við verðum að hætta að kvarta yfir klíkuhætti suðaustur Evrópu...

Engin ummæli: