22.5.08

Ungfrú Ákveðin

Ég er í verkefninu að láta Freigátuna ekki borða neitt áður en hún fer í nefkirtlatökuna. Sem er ekki fyrr en um ellefuleytið. Gengur ennþá vel, en klukkan er nú bara hálfníu. Og herra Jútúb hefur haldið henni við efnið hingað til. Hún er orðin húkkt á myndböndum með Tiny Toons og They Might Be Giants. (Og tónlistin er meira atriði en teiknimyndirnar.) Og hvert lag þarf að spila svona 10 sinnum í röð, svo þetta er hinn ágætasti tímaþjófur.

Fleira ættgengt. Úr móðurættinni virðist hún vera að byrja að fá fatasérviskur. Um daginn var gerð mikil leit að Latabæjarbolnum þar sem hann var eini bolurinn sem var að marka þann daginn. Í gærkvöldi kom Hugga frænka færandi hendi með nokkra alklæðnaði frá Manchester...

Í þeim orðum skrifuðum náði drepsóttin Móðurskipinu á sitt vald. Freigátan er eins og ekkert hafi í skorist eftir aðgerðina, en Móðurskipið er eins og það hafi verið lamið í hausinn með hamrinum úr síðustu færslu.

Ööööömurlegt. Og það á júródegi.


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Svo það fari nú ekki framhjá þér í horinu öllu, þá skrifaði ég komment við færsluna "Ynnndislegt.."
Luv, Ylfa

Sigga Lára sagði...

Já, akkúrat textinn sem ég kunni ekki. :-)