3.11.08

Sótt

Ég og hinn níu-mánaða-í-dag Hraðbátur erum sloj.
Svo mjög að Rannsóknarskip er heima í dag til að sjá um okkur. Ég meika ekki einu sinni að setja mynd af honum í tilefni daxins.
Verðum vonandi nokkurn veginn fótafær á morgun. Sem er eins gott þar sem afinn og amman að eystan eru að koma í heimsókn á leið sinni til austurlanda fjær.

Sýningar gengu annars með eindæmum vel um helgina fyrir pakkfullu húsi og fengu fínar viðtökur. Held ég. Víðast hvar. Og nú er þeim lokið og verður aldregi endurtekið.

Hélt ég gæti verið á löppum en hef líklegast rangt fyrir mér. Ætla að slaga aftur í rúmið.

2 ummæli:

Þórunn Gréta sagði...

Hvert er mamma þín að fara???

Sigga Lára sagði...

Foreldrar mínir eru að fara bæðisaman í fjörutíu ára brúðkaupsafmælisferð til Víetnam og Kambódíu. Aðeins.