13.2.06

Sprenging!

Ég biðst velvirðingar á þessu fréttahléi, sem varð vegna húsverkasprengingar. Slíkt vill fylgja nýfæddum heimilismönnum, þó ég skilji ekki alveg hvers vegna. Er með kenningu um að hverju nýju barni fylgi her húsálfa sem ruslar til í eldhúsinu þegar maður sér ekki til. Allavega, hér koma myndir:


Í ætt við Móðurskipið finnst Freigátunnni leiðinlegt að máta föt.


Það gengur betur ef hún er sofandi.


Og í dag fór allur flotinn á siglingu um Vestubæinn.

3 ummæli:

Nonni sagði...

Heil og sael og til hamingju enn og aftur...fràbaerar myndir:)....hlakka til ad koma heim og hitta allan flotann.
Kvedja frà Argentìnu...à leid til Rio!!
Nonni

Nafnlaus sagði...

Er hún svo ekki með þessa líka löngu listamannsfingur. Kemur sér ákaflega vel t.d. við píanó- eða sellóleik.

Sigga Lára sagði...

Já, hún er með gífurlega hramma, barnið. Hvaðan sem hún hefur það nú, eins og við Árni erum nú nett og pen.