2.9.08

Í staðinn fyrir ípottinn

tók ég Freigátuna með í líkamsrækt kvöldsins. Hún söng hástöfum í barnastólnum alveg lengst suður með sjó. Það þurfti að þreyta hana, hún svaf í tvo tíma í dag. En ég hjólaði sömu leið og í gær, nema bara miklu lengra, með 13 og hálft kíló til viðbótar á hjólinu, og varð miklu minna þreytt. Hef greinilega komist heilmikið í form, bara síðan í gær!

Kannski vegna þess að ég tók Kringluna með áhlaupi í dag. Keypti m.a. sundbol handa Freigátunni en hún er að byrja á sundnámskeiði í sundskólanum á Hrafnistu á morgun. Það verður nú illa gaman.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Júbbí dú. Bið að heilsa Sóley í sundskólanum en þar hef ég dvalið löngum stundum með stúlkurnar mínar þrjár. Við tókum framhalds og framhalds og framhalds og það var alltaf svakalega gaman.