12.10.08

Alveg rétt!

Það var að rifjast upp fyrir mér að um daginn fékk ég alveg fáránlega tarottsppá. Ég bloggaði um að ég fékk eina alveg fantagóða. Einmitt þess vegna prófaði ég aftur, nokkrum dögum seinna. Sú var... undarleg. Útkoman úr henni og svona, það sem ég vildi gera, var áfram fantagott. En allt í kring var ekkert nema hrun, missir, sorg, bæði dauðinn og djöfullinn og ég veit ekki hvað. Ég hef aldrei séð annað eins. En svo var útkoman svona líka svakalega fín. Fyrir mig. Ég sat lengi og spáði í spilin. Þetta var greinilega afskaplega merkileg spá. Rosalega mikið af merkilegum spilum á mikilvægum stöðum. En útkoman í þessu var undarleg og þetta var allt mjög... skrítið.

En nú er þetta morgunljóst.
Í þessari kreppu verð ég gæfusöm eins og mý á mykjuskán.

Og þetta er nú Ljóti Hálfvitinn.

Engin ummæli: