15.12.08

Hjúkk

Var alveg að verða megastressuð yfir öllum jólagjöfunum sem þurfa að fara út á land í vikunni. Skólinn að klárast hjá okkur Rannsóknarskipi báðum í vikulokin og ég var ekki alveg að sjá tímann duga... en svo fóru Rannsóknarskip og Smábátur bara út í gærkveldi og redduðu öllum norðurgjöfum í einum grænum. Þá eigum við Friðrik bara eftir að skreppa út og versla eitthvað fátt og smátt. Svo verður dvalið langdvölum yfir skræðunum. Mikið verð ég fegin á fimmtudagskvöldið. Samt pínu hressandi að fá svona eitt próf og eina ritgerð í lokin.

Í gærkvöldi skrifaði ég lannngan lista yfir allt sem ég ætlaði að gera í dag. 
Best að fara að lesa hann.

1 ummæli:

Berglind Rós sagði...

Hurru má ég skjóta einu á listann hjá þér, að fara inn í msn næst þegar þú ert í tölvunni og hóa í mig