22.1.09

Hávaðabyltingin!

Ég var hrikalega stolt af framgöngu mótmælenda... fram undir miðnætti. Ofbeldi gegn lögreglu verður aldrei annað en vatn á myllu "valdstjórnarinar" hans Björns Bjarnasonar. Hin friðsamlegu en háværu mótmæli sem hafa verið í hávegum höfð eru hins vegar að skila árangri, eins og sjá má af niðurstöðu fundar Reykjavíkurdeildar Samfylkingarinnar í gærkvöldi.

Þess vegna mega friðsamir mótmælendur alls ekki sniðganga mótmælinn vegna einhverra örfárra ofbeldisseggja, báðumegin lögregluskjaldanna. Ég mæli með því að friðsamir mótmælendur stilli sér upp sem næst lögreglu og leggi sig fram um að sýna henni tillitssemi.

En klukkan hálf ellefu þarf að hafa HÁTT!!! Geir Hilmar með skýrslu um efnahagsmál?
Hvað þykist hann hafa að segja sem við vitum ekki fyrir?
Að það sé algjörlega nauðsynlegt að klára að brytja heilbrigðiskerfið í smátt áður en farið verður að skoða bankana almennilega?

VANHÆF RÍKISSTJÓRN!

Engin ummæli: