19.4.10

Skýrslan og svona...

Skýrslan kom í hús hjá mér í dag. Ég er eitthvað ekki að nenna að byrja á henni. Mér heyrist nefnilega hinir nýendureinkavæddu bankar standa á jafnvel lélegri brauðfótum en þeir gömlu, auk þess sem raddir heyrast um yfirvofandi gjaldþrot Íbúðalánasjóðs, Sparisjóðanna, Lífeyrissjóðanna ... og bara þess sem eftir er? Enda eru þetta mest sömu asnarnir sem eru enn að reka þetta. Og þeir ætla sér ekkert annað en fyrir tveimur árum; nefnilega hirða allt fémætt innanúr og skilja skurnina eftir, þangað til hún hrynur. Á eftir hinu.

Jæjajæja. Þá verður kannski hægt að gera aðra byltingu. Og stofna Zeitgeist-þjóðfélagið. Enda ekki um annað að ræða en að segja formlega skilið við peningakerfið á því stigi málsins.
Og það verður nú fínt.

Eiginmaðurinn sveiflast á milli vonar og ótta. Átti að vera að fara á ráðstefnu í Danmörku á morgun en flugið er allt í öskunni. Sjáum til. Verstur fjandinn að ef hann kemst ekki þá verð ég illa bitin í samviskunni í þau þrjú skipti sem ég hugsa mér að vera í burtu í sumar!

Úr góðufréttahorninu er það helst að frétta að Hraðbátur hefur formlega fengið inni á leikskólanum hinumegin við götuna og fær að byrja þar um miðjan maí. Ekki nóg með að þá getum við sparað okkur akstur í vinnuna, heldur lækkar dagvistunarkostnaður heimilisins um einhvern tuttuguþúsund kall á mánuði.
Og munar um minna á þessu heimili einna grunnskólakennaralauna.

Annars er ferlega margt að klárast, bara. Kennsla búin í Háskólanum. Voða mikil heimsendatilfinning í loftinu.

Kannski bara askan og eldurinn.

14.4.10

Endurmat

Mér finnst alltaf jafnfyndið að fara allar krókaleiðirnar sem þarf til að komast inn í heimabankann minn, póst-hrun. Notendanafn og lykilorð, þá á að brúka eitthvað auðkennisdæmi sem ég setti óvart í þvottavélina fyrir mörgum árum og þarf þess vegna að fá sent í símann... kostar 6 krónur ... hvað ætli bankar og símafyrirtæki hali mikið inn á þessu á dag?

Allavega, það sem mér finnst fyndið við þetta alltsaman er að nú er komið í ljós að bankarnir voru rændir innanfrá. Og á meðan bankaleynd og skilanefndir sitja á þeim, og við fáum ekki að vita hverjir eiga þá, er líklega ennþá verið að því. Líklega endar með því að fólk fer bara að geyma peningana heima hjá sér. Fasteigna"markaðurinn" er heldur ekki "í frosti". Það er bara ekki skortur á húsnæði. Enginn er að fara að borga tugmilljónir sem hann á ekki til fyrir eitthvað sem miklu meira en nóg er til af. Fasteigna"markaðurinn" er ekki frosinn. Hann er farinn. Sem og íslensku "fjármálamarkaður" eins og hann leggur sig. Og farið hefur fé betra. (Pun intended.)

Margir eru orðnir óþreyjufullir og kalla á einhverskonar "enduruppbyggingu". Ég held að það sé ekkert "endur" í því. Hér þurfa að verða jarðvegsskipti og svo þarf að hefja hér í fyrsta sinn uppbyggingu. Hún er reyndar hafin á fullu. Það er bara lítið horft til þess þar sem enginn einn er að skapa fjögurþúsund vellaunuð skítadjobb. En það er ýmislegt að gerast í atvinnulífinu. Menn eru byrjaðir að fikta sig áfram með að fullvinna matvöru. Það hefur orðið sannkölluð nýsköpunarsprengja. Hönnunarverkefni. Allt brjálað í ferðamennsku og menn hafa loksins tíma til að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug til að sýna túristum. Og þar kemur líka hönnun aftur við sögu.

Vandamálið sem margir virðast sjá er að það er ekkert EITT STÓRT að redda ÖLLU. Lesist: Það er ekkert eitt stórt ógeðsver þar sem gullrassar og arðræningjar geta safnað til sín haug af fólki og látið það þræla fyrir sig á skítalaunum á meðan þeir sjálfir maka krókinn.
En só wott?

Atvinnuleysi er vandamál. En ef það væri nú bara farið í að manna, t.d., heilbrigðis og menntakerfi almennilega, í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins, væri það ekki lengur vandamál. Hvað með það þó við þurfum að vera aðeins lengur að borga niður síðustu sukkgeðveiki? Er slæmt að við þurfum að muna það lengur en þrjú ár? "Fjármálamarkaðurinn" er farinn. Dauður. Kemur aldrei aftur. Góðærisfábjánarnir verða bara að fara með þýfið í spilavíti erlendis.

Atvinnuleysi er líka viðhorfsvandamál. Atvinnuleysi og iðjuleysi þarf alls ekki að vera eitt og hið sama. En það hjálpar ekki til að sjálfsmynd hins almenna Íslendings (og Vesturlandabúa, reyndar) hangir gríðarlega mikið á því að honum hlotnist sá heiður að vera launaþræll hjá arðræningja. Þeir sem fást við aðra (og næstum alltaf merkilegri) hluti hafa aðra og ómerkilegri stöðu í samfélaginu. Þetta viðhorf auðveldar mönnum vissulega verkið, þegar þeir ætla að ryksuga allt fémætt úr þjóðfélaginu.

Mér líður ágætlega eftir þessa skýrslu. Er reyndar enn með smá ælubragð eftir PR-stönt morgunsins frá Björgólfi T Hor... ferlega vona ég að allir þessir bjánar séu í útlöndum.

Sumir hafa talað um að kosningar hafi verið of snemma. Þær ættu að vera núna. Ég fór að ímynda mér hvernig ástandið hérna væri núna ef Geir og Solla og co. væru enn í ríkisstjórn. Ég hef á tilfinningunni að menn væru ekkert að fara að segja af sér núna heldur. Og það væri ekkert bara verið að tromma og henda einu og einu eggi í rólegheitunum niðri á Austurvelli. Ef byltingin væri núna væri þegar orðið mannfall. Svo líklegra er heppilegra, svona uppá ofbeldið, að flest af þessu fólki sé að mestu horfið af sjónarsviðinu.

George Simmel er þýskur spekingur sem setti fram áhugaverða kenningu snemma á 20. öld. Hún snýst um að á hverjum tíma, á ákveðnu svæði, verði stundum ein hugmynd eða fyrirbæri algjörlega allsráðandi. Sé grunnstoðin að öllu samfélaginu að menn komist hreinlega aldrei út úr henni, þrátti fyrir að þeir sjái gallana. Svoleiðis var Guð á miðöldum í Evrópu. Enginn gat hugsað út fyrir vilja Guðs og vald kirkjunnar. Þegar Marteinn Lúter gerði sína byltingu datt honum ekkert í hug annað en að breyta kirkjunni. Komst ekki út fyrir Guð. Hann var miðlægur í öllum átökum, allri stéttaskiptingu, öllum ójöfnuði, stríði, galdraofsóknum, öllum viðbjóðnum sem viðgekkst. Auðvitað kom svo í ljós að þessi miðlæga hugmynd var ekki annað en skálkaskjól. Þeir sem töglin höfðu og hagldirnar voru þeir einu sem brutu lögmál Guðs eins og þeim hentaði (og gera enn) en þrautpíndu almenning til að fylgja ritningunni, hvað sem það kostaði. Framþróun í vísindum og þekkingu var líka stöðvuð, að miklu leyti. Það sem samsamaðist ekki ritningunni mátti ekki rannsaka.
Svo komu menn til sjálfra sín. Og þá kom Endurreisnin.

Í dag eru það peningar. Öll stríð. Öll mengun. Allur fáránleikinn í umgengni okkar við annað fólk og náttúruna viðgengst þar sem tilgangurinn helgar meðalið. Tilgangurinn er peningar. Og þeir sem hafa alræðisvald yfir peningunum geta látið skuldirnar sínar hverfa. Rænt eina þjóð, stungið undan óteljandi milljörðum, en gengið samt um með tandurhreinar kennitölur eins og nýfædd lömb. Skríllinn verður samt að borga skuldirnar sínar. Borga skatta og borga fyrir alla þjónustu, stóra og smáa. Þannig er lögmálið. Og það er ekki hægt að rannsaka hvað liggur handan veldis peninganna. Það fæst ekki fjármagn til þess.

Það verður gaman þegar veldi peninganna hrynur. Og það gerir það. Sprungurnar eru orðnar mjög áberandi. Þá sitja þeir sem töldu sig á toppnum allt í einu uppi með haug af pappír. Og ekkert að éta.

Þá skal maður nú glóta, ef maður verður ekki dauður.

---

Svo gýs bara meira og skelfur landshorna á milli.
Kannski miðaldamenn hafi haft rétt fyrir sér og Skrattinn sé á leiðinni upp að innheimta sálirnar sem hann keypti?

12.4.10

Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum!

Ég missti af skýrslusullinu í kvöld.

Ástæðan er hreint ekki af verra taginu. Hugleikur gerði obbolítið kommbakk í Þjóðleikhúskjallarann og sýndi eina 7 einþáttunga fyrir fáa útvalda. Vilji fleiri verða útvaldir er önnur sýning annað kvöld kl. 20.00. 1500 kall inn. (Sem er ekki NEITT miðað við allar tölurnar sem við höfum heyrt í dag. Ekki taka myntkörfulán fyrir því, samt.)

Og þetta er nú bara nokkuð flott dagskrá hjá okkur, held ég bara, svei mér þá. Örugglega mjög hressandi eftir sólarhring af skýrsli.

Annars sýnist mér þetta 9 binda rittröll vera hið besta og vonandi að sérstakur saksóknari og þingnefndin taki á málum af sömu festu.

Að vísu skammast sín enginn.
En bjóst nokkur við því?

Menn verða þá bara ferlega bitrir þegar þeim verður stungið í steininn, við heilmikinn fögnuð allra viðstaddra. Það verður bara fyndið.

42 mínútur í skýrslu! Darrammmm!!!

Heyrði talað um stemmingu á fréttastofunni á Bylgjunni í morgun. Enda er svona kjördagsfílíngur í manni.

Ég er alls ekki að fatta hræðsluna við óeirðir. Ekkert frekar en ég fattaði hana fyrir hálfu ári síðan. Ef þessi skýrsla vekur þá skoðun manna að gagngerra breytinga sé þörf í stjórnmálum á Íslandi er það ekkert nema illa frábært. Og ég held það sé ekkert verra að sjá nokkra táknræna gjörninga á torgum og við heimili ákveðinna einstaklinga af því tilefni. Og jafnvel trommað smá.

En byltingin er löngu orðin appelsínugul og ég held hún verði það áfram.

Svo á Davíð eftir að koma og segja að þessi skýrsla sé ómerkilegur pappír og segi ekkert nýtt... soldið eins og með endurreisntarskýrslu Sjálfstæðisflokksins.

Og það er bara eitt sem ég þoli verr en þegar við Davíð erum sammála. Það er þegar við Hannes Hólmsteinn erum sammála. Hvort tveggja gerist stöku sinnum... og þá fer veröld mín einhvernveginn á hliðina.

Byltingin lifi!

9.4.10

Pólitísk gjörningaskýrsla...

Ég veit sosum ekki með skýrsluna ógurlegu.
Mér finnst þetta vera svolítið eins og að gefa út endinn á myndinni, og jafnvel byrjunina á síkvelinu. Að rannsaka hrunið? Aðdraganda hrunsins? Aðdragandi hrunsins var langur. Allt þenslutímabilið var aðdragandi hrunsins. Hrunið sjálft var ekki ein báran stök frekar en aðrar. Það var afleiðing atburðarásar sem er líklega alveg hundlöng. Allt að því 20 ár, eða eitthvað.

Ég get alveg afgreitt "orsök hrunsins" í einu orði. Góðærið. Tímabilið sem einkenndist af sýndarvelmegun og hafði á að skipa ríkisstjórn sem gerði nokkrum mönnum kleift, geðveikum af græðgi, að ræna þjóðina nokkra áratugi inn í framtíðina.

Einfalt mál.

Nema náttúrulega ef maður er að gera doktorsrannsókn um pólitískt leikhús fyrir og eftir hrun.
Og mönnum detti sá skemmtilegi gjörningur í hug að lesa kvikindið frá upphafi til enda uppi í Borgarleikhúsi.
Skemmtilegt, en, bætir við mig nokkurra mánaða (jafnvel ára) vinnu af grúski um pólitíska og samtímatengda gjörningalist. Mér liggur við örvinlan... þó þetta sé vissulega seinni tíma vandamál þar sem ég hef ekki vinnu við eftirhrunsleikhús fyrr en þarnæsta vetur, í fyrsta lagi.

Svo nú er mér skapi næst að kaupa fjárans skýrsluna og láta hana vaða í hausinn á einhverjum.
Kalla það pólitískan gjörning?

7.4.10

Ferðabókanir

Eftir að hafa þvælst um frumskóga þess sem þarf að skipuleggja ferðalög erlendis í kreppunni finn ég mig knúna til að setja inn nokkur hint og linka. Nú er ég búin að vera í svona mánuð að reyna að koma því heim og saman hvernig ég á að fara á ráðstefnu í München í lok júlí án þess að fara á hvínandi höfuðið. Og fyrsta góðráð er:

- Að gefa sér gríðarlega mikinn tíma til að spá og spekúlera.

Ég hef brúkað heilmikið vefinn dohop.is til að grennslast fyrir um ódýrustu ferðaleiðir en það er ágætis yfirlitsvefur. Þó endaði með því að ég datt ofan á bráðgott tilboð á næturflugi beint frá Keflavík til München, aðfaranótt ráðstefnunnar og krækti í síðasta sætið. Keflavík-München á 26.000 kall. Hefði reyndar getað flogið aðeins ódýrara með Icelandexpress og Easyjet, en það hefði þýtt að leggja af stað hálfum degi fyrr og nótt á hinum bráðskemmtilega Gatwick flugvelli auk þess sem maður fær að éta í Flugleiðavélum. Og eins og það kostar í útlöndum þá getur það alveg talið nokkra þúsundkalla.

- Það borgar sig að skrá sig á nettilboðalistann hjá Icelandair. Aldrei að vita nema það sem mann vantar detti inn.
- Með því að ferðast á nóttunni báðar leiðir sparar maður tvær nætur í gistingu. Sem er slatti.

Í München ákvað ég að spreða á mig eins manns herbergi. Það er þó bara á svona hóteli sem er heimavist á veturna. En það mikilvæga er að það er í göngufæri við ráðstefnuna. Allt í útlöndum kostar nefnilega formúgu fyrir íslenskar krónur í dag. Þar á meðal almenningssamgöngur. Með því að ferðast á nóttunni báðar leiðir kemst ég af með þrjár nætur í gistingu og greiddi fyrir þær 17.000 kall. (Með morgunverði.)

Heimferðin er óbókuð enn. Það kemur til af því að ekki er hægt að bóka lestarferðir með minna en 3 mánaða fyrirvara. En í lok mánaðarins hyggst ég tryggja mér beð í næturlest frá München til Kaupmannahafnar hvaðan ég mun taka kvöldflug með Icelandexpress kvöldið eftir. Um þrjátíuþúsundkall. Þ.e.a.s., nema Icelandair detti í hug að poppa upp með góðan díl til baka í millitíðinni.

En lestir eru snilldarferðamáti. Og þá fær maður smá ferðalag út úr þessu í leiðinni.

Með ráðstefnugjaldi og öllusaman held ég að kostnaðurinn sé ennþá hérnamegin við hundraðþúsundkallinn. Sem er um helmingi lægra en á horfðist í fyrstu. Eitthvað er reyndar eftir að éta og drekka og svona ... í dýrustu borg Þýskalands ... en vaxtabæturnar verða bara að standa undir því!

4.4.10

Ammliiii!

Þennan dag upprisunnar heiðra ég með því að eiga afmæli. Er í dag 36 ára. Hvorki meira né minna.

Það er nú kúl. Hægt að taka heila kvaðratrót af því og svona. Næstum jafnkúl og prímtöluafmæli. Sem er til dæmis á næsta ári.

Annars var seinni hálfleikur fermingarveislu haldinn í gær. Unglingurinn orðin talsvert fjáðari en honum er hollt. Gaman verður nú að rífast við hann um í hvað hann fær að eyða peningunum... Strax farin að hlakka gífurlega til.

Páskunum hefur sumsé verið varið í höfuðstað Norðurlands hvar við höfum dvalið í orlofsíbúð ásamt foreldrum mínum. Þau hafa ammast og afast eins og égveitekkihvað svo við höfum haft það nokkuð rólegt. Meðal annars verið netlaus sem er alltaf spes.

Nú erum við stödd á óðli feðra Rannsóknarskipsins hvar páskalambið mun snætt von bráðar.

Á morgun verður svo lagt land undir hjól og haldið aftur heim til Borgar Óttans.