6.2.06

Skrambans

Þar lágu Danir í því. (Sem þeir gera reyndar soldið, þessa dagana.)
En auðvitað er Freigátan með einföldu. Eins og Hrafnhildur benti á, öfugt við Freyvangsleikhúsið. Leiðréttist snarlega og fari þessi meinlega villa aftur inn einhversstaðar, mun ég skammlaust afsaka mig með heilarýrnun sökum brjóstagjafaþoku.

Og talandi um brjóst. Ég hef alla ævi verið með skoruduld. Heilkenni sem mig minnir að áðurnefnd Hrafnhildur hafi kynnt mér fyrir margt löngu. Þangað til allt í einu núna, að ég er komin með þessa fínu... og finnst ég vera orðin algjör B-O-B-A, eins og kóngurinn sagði. Freigátan sagði reyndar sína skoðun á því snemma í morgun með því að gera sér lítið fyrir og æla beint ofan í hana. Notagildi sem mér hafði ekki hugkvæmst. Gæti kannski komið sér vel ef maður væri ógeðslega fullur einhvers staðar?

Það er svona. Ælan að vera sóði...

3 ummæli:

Bára sagði...

Haha. Skondin stelpa. En hérna, er vesalings barnið nokkuð rauðhært?

Spunkhildur sagði...

Hún er fullkomin, það er það orð sem kemst næst því að lýsa henni. Full-kom-in!!!

Nafnlaus sagði...

:)

Er það dulið svar við spurningunni? Ekki rauðhærð sem sagt?

:)