20.3.06

Skattframtöl

eru uppfinning Zatans til að firra mannkynið vitinu. Ef ég kaupi mér einhvern tíma aftur fasteign, eða bara eitthvað, þá ætla ég í leiðinni að ráða mér endurskoðanda.

Annars, það borgar sig greinilega að auglýsa eftir því sem mann vantar á blogginu sínu. Er byrjuð í ljósum, búin að panta í höfuðpunt og Hugrún syss kom með fullt af fötum sem ég má fá lánuð auk góðra ábendinga um verslanir, hugnist mér ekkert af hennar klæðaskáp. Svo er ég búin að fá svo fínar ábendingar um ljósmyndara að nú er bara að velja.

Takktakk.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ágætis skattframtalsmaður í 6634141. Hann heitir Helgi. Snöggur að grípa hlutina en fáorður, stór og dimmraddaður. Fullkomlega rúðustrikaður og traustari en andskotinn. Tiltölulega ódýr líka miðað við hvað maður er tilbúinn til að borga mikið fyrir að losna við þetta viðbjóðslega skítadjobb. Þú veist þá af honum á næsta ári, ef það er of seint núna.