7.5.06

Ónýti

Við Freigáta gerðumst skrópagemlingar í dag. Skrópuðum á bandalaxþing. Hún er búin að vera með mömmuskjóðukast og ég er búin að þurfa helst að halda á henni stanslaust síðan eldsnemma í morgun, og móðurskipið hefur eitthvað forkastað á sér bakinu við einstæðið um helgina. Nú bíðum við bara eftir að Rannsóknarskip og Smábátur komi heim úr helgarferðinni, en það ku gerast á hverri stundu.

Er samt hálfskúffuð að hafa ekki meikað það á restina af fundinum, er að farast úr forvitni fyrir vikið. Nú veit ég ekki einu sinni hverjir eru í stjórn Bandalaxins! Bót í máli að ég ætla að draga sjálfa mig á Systur í Möguleikhúsinu í kvöld og þar hlýtur einhver að vera sem getur sagt mér fréttir. Veit þó að það eru Selfyssingar sem fara í Þjóðleikhúsið í ár.

Annars er bara eins gott að þeir feðgar fari að láta sjá sig. Ef ég þarf að lyfta Freigátueinu sinni enn held ég geti verið að ég lendi í hjólastól.

1 ummæli:

Litla Skvís sagði...

Ertu búin að prófa höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun?
Það er guðsgjöf til grindverkskvenna!!! Get mælt með einni fyrir þig ef þú vilt!