1.2.09

Miðaldra

Hélt tvö tvöföld barnaafmæli með ókjörum bakkelsis um helgina.
Í því síðara var horft á beina útsetningu frá kynningu nýrrar ríkisstjórnin.
Og nýr menntamálaráðherra er yngri en ég.

Hefði miðaldurinn einhvern tíma hrætt mig væri ég farin á fyllerí, núna!

Í staðinn set ég stefnuna á að komast í megrunargöngu í kvöld.

Og úttekt á nýrri ríkisstjórn skv. kínverskri stjörnuspeki verður unnin um leið og heimasíða Alþingis verður uppfærð.

1 ummæli:

Ásta sagði...

Engin rotta í þessari ríkisstjórn? Það er ótækt að láta eina ógeðsrottu skemma fyrir okkur hinum.