Er komin með bumbu sem nær norður fyrir fljót af áti og þægindum í foreldrahúsum.
Er líka næstum búin með fyrsta gegnumskrif af Hinu Dularfulla Leikriti og held ég eigi erindi við Sævar Sigurgeirsson.
Skráði mig áðan á tvö leikstjórnarnámskeið hjá Hugleiki, að Rannsóknarskipi forspurðu.
Er á leiðinni í Apótekið að versla fegrunarvöru.
Og til hamingju með soninn, Guðrún og Jódís. (Kommentakerfið þeirra vill ekki tala við mig.)
Freigáta er sofandi og amma-Freigáta skúrar eldhúsgólfið eins og hún eigi lífið að leysa.
Á morgun ætla ég að hitta Rannveigu og fara á einhvers konar "Árgangamót" til að rifja upp hverjir voru með mér í bekk í barnaskóla.
Og nú er Míka að verða battríslaus og snúran á efri hæðinni. Svo ég hætti.
23.8.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hálfvitagangur á Skriðuklaustri kl. 14 á sunnudaginn. Segðu öllum í bekknum.
Ertu ólétt ?????
Til hamingju !
Ha? Ólétt?
tíhíhí... bara að djóka.
Bara kvitta, vara lesa,
góða helgi.
Bæ
Skrifa ummæli