7.1.05

Ég varð fyrir nokkru aðkasti um jólin. Hafði það með frammistöðu minna manna í enska boltanum að gera og var mér nokkuð núið um nasir 5-2 ósigri gegn ófétunum í Tottenham. Enda var ég að miklu umkringd Liverpool-fjölskyldunni ógurlegu. Í hefndarskyni ætla ég að setja link á Jón Mág svo alþjóð geti séð hvernig stafsetningin hans er. Merkilegt að maður sem á í kunningsskap við Berglindi Steins skuli komast upp með annað eins...

4 ummæli:

Spunkhildur sagði...

Hmmff... Það eru engin óféti í Tottenham. Og hafa aldrei verið. Grr.. Og Ferrari eru líka bestir og Frammarar (það er meira trúarlegt en byggt á staðreyndum). Enda eru allir með Fram-tennur. Heh...

Elísabet Katrín sagði...

Alkunn sannindi: Liverpool er besta liðið ever. (svo gott að það meira að segja leifir stundum öðrum liðum að vinna, bara svo þau geti verið með). Arsenal sökkar big time! Allt þar á milli er lala:)
Hafðu það gott :)

Sigga Lára sagði...

Tekið skal fram að téð EF er mágkona mín. Þið sjáið hvað við er að eiga?

Nonni sagði...

Já Liverpool er best! Svo ég haldi nú áfram með þessa skemmtilegu umræðu :) Varðandi stafsetninguna er ég nú langt í frá að komast upp með þetta og fæ reglulega komment og nú þú líka!!! Þetta eru nú reyndar barra áslattárvillur af þvý að ég er sov mykið af flýta mjer að skryfa ;)