9.2.05

Vantar:
Fleiri hendur
Meiri tíma
Betri heilsu
Internet allsstaðar (aðallega heima hjá mér)
Nýja framrúðu í bílinn
Meira vit á öllu, sérstaklega tölvunni minni, til þess að ég geti gert allt sem nýja vinnan mín vill að ég geri við hana.

Var með magapínu á bollu- og sprengidag. Borðaði ekki eina einustu bollu eða saltkjöt eða baun. Mikið svekkj. Er ennþá sloj, og samt að reyna að gera fullt af einhverju með magapínu í hausnum.

Allt í volli.

4 ummæli:

Berglind Rós sagði...

Oh ég fékk líka svona magapínu í hausinn um daginn, það er ekki gott. Batni þér nú fljótt og vel.

Gummi Erlings sagði...

Jebbs, og misstir af svakalegri æfingu í gær...

Gadfly sagði...

Ojbarasta barasta! Þú átt alla mína samúð.

Nafnlaus sagði...

Svona svona...þetta lagast allt. Koddu bara í endurhæfingu til mín, ég skal fóðra þig á hressandi urtaveigum úr vestfirzkri náttúru, yljandi kornvellingum úr íslenzkri, lífrænni byggræktum og spírusafa úr innfluttum bláþörungum. Strokum og gælum og(Hallisérummðær)hughreystandi orðum.

Já og svo auðvitað fylgir með stór matskeið af lýsi hvern morgun ásamt fjórum bitum af kæstum hákarli síðdegis!
Ylfa