28.1.07

Hún á afmæli í dag!

En myndatökur fórust eitthvað fyrir. Verður bætt úr því fljótlega. það þarf nefnilega að klæðast öllum bleiku afmælisgjafafötunum og mynda það. Allt sem kom innan úr pökkunum passar meira og minna saman. Og þá er allt í fínu jafnvægi. Oftast er Freigáta nú bara í fötum af Smábáti og því frekar strákalega til fara.


Allavega, í staðinn fyrir afmælismyndir er hérna ein áður óbirt mynd af þeim ömmgum, Gyðunum, tekin fyrir tæpu ári.



3 ummæli:

Berglind Rós sagði...

Komst ekki í tölvuna mína í gær, en hundrað hamingjuóskir með gærdaginn! Ætla að reyna að kíkja á ykkur í vikunni ef þið megið vera að.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Gyðu litlu prinsipissu, hún verður bara fallegri með hverjum deginum;-) Knús á línuna

Svandís sagði...

Til hamingju med eins ars afmaelid fallega stelpa. Thu ert alveg yndisleg.

Knusadu hana fra mer SiggaLara og sjalfa thig fast og lengi i leidinni.