22.1.07

Selfoss varða

Já, svarið við getrauninni var: Leikfélag Selfoss. En hendingin atarna er einmitt lokalínan í þjóðsöng þess félax. Þar var ég einmitt á frumsýningu og fékk andarteppu af hrifningu.

Bókstaflega. Er með flensuna.

Og alþjóð er með andarteppu. Ísland vann Frakkland. Sem mér finnst mjög gaman og ég sendi öllum leiðinlegum Frökkum sem ég þekki fingurinn í anda. (Skemmtilegum sendi ég ekki neitt.)

Á laugardagskvöld bauð Rannsóknarskip nokkrum knáum köppum hingað í mat. Reyndar þurftu þeir síðan sjálfir að hjálpa heilmkið til við matseldina þar sem húsmóðirin var varla upp á einn einasta fisk. Þeir elduðu sér hrefnu og svo var skálað fyrir David Attenborough.

Engin ummæli: