29.12.08

Norður

Erum að fara norður. Tilraunir til að pakka niður er verið að gera með organdi börn í hárinu ganga sæmilega.

Fórum á Vestrið eina í gær. Æði.

Hraðbátur á síðasta degi pensillíns og vaknaði í morgun með ekkert RS í lungunum sínum og engan reykingamannahósta.

Hlakka til að pakka börnum niður í bílstóla og bruna af stað með þau kyrrsett og vonandi verður ekki mikið grenjað á leiðinni.

Tölvan verður með í för en internetið eitthvað síður svo ég veit ekki hvað verður bloggað.

Komum aftur 5. jan.

3 ummæli:

Sverrir Friðriksson sagði...

Það verður nú skemmtilegt að fá ykkur norður.

Elísabet Katrín sagði...

Hlakka til að sjá ykkur :)

Þórunn Gréta sagði...

Góða ferð norður, kærar gaml- og nýárskveðjur á línuna...