1.4.09

Spurning dagsins

Á maður að reyna að fá sér vinnu í sumar?

Nenni ekki að byrja fyrr en í fyrsta lagi í byrjun júlí. Og þarf líklega að hætta um miðjan ágúst. (Nema Hraðbátur verðir, fyrir eitthvað kraftaverk, byrjaður á leikskóla.)

Helst eitthvað sem ég gæti bara unnið í tölvunni minni, hvar sem ég væri...

Hmmm... ætli þetta sé nú ekki bara vonlaust mál, hvort sem er?

Helst ef einhvern vantar að láta skrifa leikrit eða þýða eitthvað.
Einhver?

1 ummæli:

Siggadis sagði...

Getur náttlega komið bara og leiðsagt með mér - það er bara rétt yfir h-sumarið og er ógó gaman (örugglega) og pottþétt vel launað (right) ... færð kannski góma af og til (tips)?