4.4.09

Akkúrat....

...núna var ég að bresta í 35 ára.

Deginum eyddi ég mikið til á leikæfingu. Og svo heima með börnum og eiginmanni sem eldaði handa mér dýrindis nautakjet með innndælis meðlæti. Svo svæfðum við sitthvort barnið, feðgar horfðu á nýjasta Bond og nú erum við búin að reka þann síðasta í rúmið og erum sest fyrir framan annan þáttinn af Crow Road með rauðvínið sem við nenntum ekki að hafa með matnum og After Eight.

Fínasta ammli.

2 ummæli:

Lilja Eygerður sagði...

Frábært! Innilega til hamingju með daginn á laugardaginn!
Mitt er á morgunn, en ég verð ein í koti að læra, sendi allt liðið bara austur í dekur á Stöddanum!

Sigga Lára sagði...

Hmmm... Ég sé samt alveg fegurðina í því. Þögn og skortur á litlum streituvöldum á heimilinu getur alveg verið fínasta afmælisgjöf. ;-)
Gangi þér vel að læra, Lilja mín.