23.6.09

Vinnumálastofnun og komandi sjálfsmorðahrina

Í dag fór ég á undarlegan fund. Þannig er að nú er ég hamingjusamlega atvinnulaus í tvo mánuði.

Þegar ég skráði mig var mér tjáð að ég þyrfti að mæta á þennan "fund", eins og hann er kallaður. Semsagt, eitthvað 30 - 40 atvinnuleysingjum hrúgað saman í eina stofu þar sem fallbyssað er í gegnum "úrræðin" í illa unnu Power-point sjói þar sem hálfvitaleg atriði eru látin ráða uppröðun efnis (hver heldur hvaða námskeið, t.d., frekar en efni þeirra).

Fólki er ekkert skipt niður í mismunandi hópa. Ekkert væri auðveldara en að láta menn gera örstutt krossapróf um hvort það hefði áhuga á námi, starfsþjálfun (í hverju þá) eða atvinnuleit. En, nei. Klukkutíma hraðferð í gegnum alltsaman fá menn. Gögn sem maður fær á pappír passar ekki við það sem powerpointið segir og þriðju útgáfu af upplýsingunum að finna á vef Vinnumálastofnunar).
Næsti hópur inn klukkan 11, eins og gyðingarnir í næsta járnbrautavagn.

Einstaklingsviðtöl við fyrstu skráningu eftir atvinnumissi eru ekki í boði. Menn geta (svosem) fengið sálfræðiaðstoð ef menn "telja sig þurfa." Konunni sem kom með spurningu varðandi biðtíma eftir að hafa misst vinnuna í fæðingarolofi var svarað með hálfgerðum skætingi. Það var ekki boðið upp á að "fundargestir" spyrðu spurninga.

Viðkvæðið var "þið getið reynt" og "þið getið prófað". En látið að því liggja að öll þessi námskeið og "úrræði" væru alltaf stappfull og erfitt í að komast. Auk þess sem einhver þeirra á að leggja niður. Eins og heimasíðugerð. Það eru víst ekkert SVO mörg störf við það. (WHAT?)

Bótaþegum var síðan vísað í einum haug út í rigninguna. Ekki veit ég hvort margir voru einhverju nær. Engum leið betur. Ég sá rautt og langaði mest niður í Ráðhús og berja einhvern af handahófi. Ég sjálf get alveg fundið út úr þessum frumskógi. Og rifið kjaft ef ég þarf. En ég er nú líka með tvær mastersgráður og að hroka yfir mig þessa dagana. Fólk með lágt sjálfsmat á ekki séns. Það litla sem eftir er hirða skössin á Vinnumálastofnun.

Í borginni er tómt atvinnuhúsnæði úti um allt. Fullt af fólki á atvinnuleysisskrá hefur allskonar þjálfun í mannlegum samskiptum. En er hægt að ráða hæfa einstaklinga inn á Vinnumálastofnun og stækka hana eins og ástandið krefst?
Nei. Byggjum heldur tónlistarhús.

Þetta leysir sig sjálft.
Það stórfækkar á atvinnuleysisskrá í fjöldasjálfsmorðunum um jólin.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Je minn eini. Gott blogg, flott lýsingar á virðingarleysi íslenskra þjónustustofnana. Ömurlegt. Gangi þér vel.

Nafnlaus sagði...

þetta var sjokkerandi lesning, maður hefði haldið að til væri morandi af hæfu fólki í þessi störf hjá Vinnumálastofnun. Þvílíkt krapp að bjóða atvinnulausum upp á svona tímasóun og kjaftæði..
kveðja
Hildur

Nafnlaus sagði...

Jiii! Ég verð bara reið við að lesa þetta !! Helvítis hroki og sjálfsrassgatsborun í þessu fólki !
Takk fyrir upplýsinguna... Höldum áfram að láta í okkur heyra!!

Sigga litla í Tungu (Lísa)

Nafnlaus sagði...

Ég skora á þig að birta þetta í mogganum eða fréttablaðinu,frábær grein kv gua

Sigga Lára sagði...

Harðorð grein er í smíðum... Ég ætla bara að klára að láta stofnunina þjónusta mig og samþykkja það sem ég vil gera við sumarið, fyrst. Ég treysti þessu fólki fullkomlega til að verða jafnvel óliðlegra við fólk sem er að setja fram gagnrýni á opinberum (ja, opinberari en þessum) vettvangi.