Blogger er á þýsku. Það var svo sem eftir öðru.
Nú er ég sumsé í Munchen á ógurlega merkilegri ráðstefnu og Þingi International Federation for Theatre Research (IFTR). Gríðarlegt stuð hjá mér, enda tók ég næturflug og er þess vegna ennþá í gær. Tóxt að finna hostelið mitt, sem er tvær neðanjarðarlestir og eitt tramm í burtu, þrátt fyrir að vera alvarlega áttavillt hérna og ævinlega sannfærð um að allar lestir séu að fara með mig í þveröfuga átt.
Hinn ágæti háskóli Ludwig-Maximilian, er líka afa Hogwörtskum eigineikum búinn. Stigar í allar áttir og stofur færast úr stað á meðan maður er í kaffi. Þriðja málstofa af fjórum í dag að hefjast. Svo hélt ég nú að það yrði friður með kvöldinu, en nei, ekki aldeilis, eftir að síðustu málstofu lýkur eigum við öll að æða út í rigninguna, taka tvær neðanjarðarlestir til að meika það í kvöldprógrammið sem inniheldur leiksýningu og partí til miðnættis.
Jæja... usss. Póstmódernismi í Veilsku leikhúsi...
27.7.10
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Núnú þýskur agi bara, engin afslöppun í boði þarna ;-) Góða skemmtun.
Galdramyndir þínar til að giftast unnu mér. Vegna hjónabandar þinnar býð ég að ég er núna giftur. Takk a einhver fjöldi af Doc Hlutir. Ég skulda þér.Viltu samband við Doc ham Hér templeofanswer@hotmail.co.uk eða Whatsapp (+2348155425481)
Skrifa ummæli